sunnudagur, janúar 28, 2007

Status

* Ég er komin með 50 vini á myspace
* Sem mér finnst ótrúlegur árangur
* Og þetta eru ekki allt hljómsveitir
* Og það bíða 4 eftir að verða samþykktir sem vinir
* Er komin með ýkt fínt layout
* Og slatta af myndum
* Ég er búin að eiga fína helgi
* Er samt á mega deadline með greinina fyrir Stúdentablaðið
* Er þá ekki um að gera að blogga smá
* Fórum á Babel á laugardagskvöldið
* Hún var geggjuð
* Christína og Oddgeir komu í mat til okkar á föstudagskvöldið
* Þau eru alltaf voða hress
* Hittum Ísak og Pálínu í lunch í dag
* Alltaf gaman að hitta þau, allt of langt síðan síðast
* Komum við í bakaríinu á leiðinni til baka og keyptum kökur
* Og tróðum þeim í okkur þegar við komum heim
* Er búin að þjást af krónískum höfuðverk í of marga daga
* Annars eru allir hressir
* Luv from 101

laugardagur, janúar 27, 2007

Athyglisbresturinn

Ég hef stundum á tilfinningunni að ég þjáist af athyglisbresti. Næ engan veginn að einbeita mér og ef ég hef ekki áhuga á því sem er að gerast í kringum mig eða kem auga á eitthvað meira spennandi þá er ég strax búin að tapa þræðinum. Það er sérstaklega mikið búið að bera á þessu á síðustu önn og byrjuninni á þessari. Það sem er helst að trufla mig í tímum er nefninlega hin afskaplega heillandi táknmálstúlkur sem er að túlka fyrir einn strákinn í bekknum. Ég dett stundum inn í það að glápa alveg á hana og verð alveg heilluð af ótrúlegri handafærni hennar. Góni alveg tímunum saman og heyri EKKERT hvað kennarinn er að segja. Frekar steikt.

Hef líka ótrúlega lítið lært þessa skóladaga sem liðnir eru. Er búin að hafa miklu meiri löngun til að standa í allskyns föndri, prjóni og saumi til skiptis, og er líka búin að afreka ýmislegt á þessum dögum. Búin að sauma mér einn bol, prjóna annan og fleira fínerí. Er núna að prjóna barnapeysu fyrir litlu dóttur vinkonu minnar sem er væntanleg í heiminn alveg á næstu dögum vonandi. Hlakka ótrúlega mikið til að sjá hana litla krílið.

Annars allt fínt að frétta. Allir voða glaðir.

þriðjudagur, janúar 23, 2007

Punktar once again


* Ég á Hendrikku Waage hring alveg eins og á myndinni
* Sem strákurinn gaf mér
* Og ég er ýkt sátt með hann
* Hringinn og strákinn
* Er hann ekki flottur?
* Ég hitti galdrakarl í dag
* Og hann lét mig svitna og öskra
* Og ég er ekki lengur með gigt í mjöðminni
* Ég fór líka í nudd í morgun
* Og er að fara í andlitsbað í fyrramálið
* Í boði Ketils
* Er búin að vera ótrúlega þreytt í nokkra daga
* Er farin að þurfa svefn á við ungabarn
* Seriously ...8 tímar eru ekki nóg fyrir mig!
* Erum að fá Chris rokk-kóng og Odda í mat til okkar á föstudaginn
* Þá verður sko kátt í höllinni
* Ég er ekki alveg að meika pollana sem eru úti um allt
* Er búin að vera blaut í lappirnar í tvo daga
* Rannveig mágkona var hjá okkur í gær í heimsókn
* Er búin að vera órúlega dugleg að versla bara í Bónus á nýja árinu
* Langar að fara og sjá Babel
* Geri það kannski um helgina
* Dagskrá vikunnar er pökkuð
* Og ég á ennþá eftir að finna út hvenær ég á eiginlega að læra
* Mig langar ótrúlega mikið til að hitta Erlu, Auði og company á kaffihúsi bráðum
* Hvað segið þið um það skvísur?

föstudagur, janúar 19, 2007

Hvað er að gerast?

Kuldinn hérna í höfuðborginni er við það að drepa mig. Ég þarf að klæða mig nánast í öll mín föt á morgnanna áður en lagt er í hann (ókei smá ýkt) og dúða mig með treflum (já fleirtölu!), húfu og vettlingum. Nú væri sko ljúft að vera staddur á einhverjum þeirra yndislegu staða sem við heimsóttum á liðnu ári, það væri eiginlega best að vera japanski gaurinn í Heroes og geta teleportað sér til Thailands með hugarorkunni einni saman á núlleinni. Ég væri sko á sundlaugarbakka með feitan kokteil í hendinni að láta nudda mig eða lakka á mér táneglurnar.

Svo að við afgreiðum meinhornið svona fyrir helgina þá verð ég að segja að ég er eiginlega pínu hissa á því hvað fólk er dónalegt og sjálfsmiðað svona á nýju ári. Setti engin annar en ég áramótaheit um að verða betri manneskja? Kannski er þetta kuldinn sem fer svona í fólk, gerir fólk dónalegt og frekt. Ég veit það ekki, kannski...

Er annars búin að hafa það fínt. Fín helgi framundan með smá vinnu á Vorinu í kvöld og útskriftarteiti á morgun hjá honum Binna. Markaðsmaðurinn mikli er officially komin með gráðuna sína. Sem minnir mig á skemmtilegar samræður sem ég átti við hann, Inga og Indriða frekar seint um kvöld, eða snemma um morgun kannski frekar. Good times, good times...

mánudagur, janúar 15, 2007

Helgin


Nú þegar lífið hefur komist í samt lag eftir hátíðarhöldin miklu þá er ekki fjarri lagi að fara aftur að blogga um aktívitet helgarinnar. Það kveður þó við annan tón núna þar sem frúin stendur í detoxinu og var helgin því rólegri sem því nemur. Á föstudagskvöldið fórum við strákurinn á þessa sýningu á Foreldrum, sem var æðisleg. Eftir sýningina skelltum við okkur svo á La Primavera og fengum okkur smá að borða. Á laugardaginn vorum við í stússi frameftir degi, Sólveig og Hólmar komu í heimsókn og svo fór ég að vinna á fyrrnefndum stað. Það var rosa mikið að gera og var ég því niðri í bæ til hálf þrjú. Á sunnudaginn tók við meira stúss, heimsókn til ömmu og tripp í íbúðina hjá Steinunni.

Eitt sem sló mig um helgina og það var hvað fólk er búið að tískuvæðast í drykkjarvali á börum. Á Prima á laugardaginn afgreiddi ég óendanlegt magn af mojito og g&t. Fólk drekkur eiginlega ekki annað. Þetta er orðið svo slæmt að ég varð hálf pirruð á þessu, miðaldra karlar að halda að þeir séu töffarar að panta "g-t"! Af hverju reynir fólk ekki að prófa eitthvað nýtt eða fara alveg í old school drykkina? Hvað varð um kaftein í kók? Einu sinni voru allir að drekka það. Eða af hverju fer fólk ekki að drekka vodka í trönuberjasafa (sem er mjög gott) eða eitthvað annað af óendanlegu úrvali baranna. Ég ætla allavegana að reyna að koma af stað "g&t-uppreisninni" og hætta að drekka það sem og mojito-inn góða. From now on (þ.e. eftir detoxið) ætla ég að reyna að fá mér eitthvað nýtt á barnum í hvert skipti. The g&t-tímabil is over!

föstudagur, janúar 12, 2007

Detox January

Já gott fólk. Það er komið að því. Sukkið, ólifnaðurinn og viðbjóðurinn hefur náð hámarki og því komin tími til að staldra við og hugsa sinn gang. Það er í raun komið að skuldadögum. Sumum af viðbjóðnum getur maður reynt að gleyma, reynt að láta eins og það hafi aldrei gerst (sukk og vibbi) annað er þannig gert að það kemur að bókstaflegum skuldadögum (visa). Janúar mánuður skal því helgaður heilbrigðara líferni, samvistum með eiginmanni og vinum, skólabókalestri og detoxi. Batnandi konu er best að lifa og skal það vera mottó mitt fram í Febrúar.

Skólinn er líka byrjaður með öllu sem því fylgir. Allar einkunnir komnar í hús fyrir haustönnina nema ein, stundaskráin er ekkert of brutal og mér tókst í morgun að komast í eina tímann sem er kl. 8. Það er s.s. allt að gerast. Er reyndar búin að komast að því, eftir ævintýri morgunsins í gaddinum, að ég þyrfti helst að fjárfesta í mannbroddum eða betri skófatnaði til að komast betur leiðar minnar. Þessi snjór ekkert að gera of góða hluti. Verst að búðirnar eru fullar af útsöludóti og ekkert almennilegt til.

Er annars að fara með husbandinu á forsýningu á Foreldrum í kvöld. Fékk óvænt tvo miða og ætla að skella mér og bjóða stráknum með. Svo er aldrei að vita hvað gerist.

Have a nice weekend!!

miðvikudagur, janúar 10, 2007

Frímann

Síðasti dagurinn í fríi áður en alvaran tekur við og skólinn byrjar á fullu. Ég er eitthvað svo full bjartsýni, 2007 verður frábært ár. Hlakka ótrúlega mikið til að takast á við öll þau verkefni sem liggja fyrir, sum sem ég er búin að bíða eftir að fá að takast á við frekar lengi og svo eru önnur sem eru nýtilkomin. Er búin að hafa það rosa fínt í fríinu, búin að sofa út, hitta vinkonur mínar og hafa það huggulegt. Verkefni næstu daga verður svo að snúa sólarhringnum aftur við og reyna að vakna fyrir kl. 11.

fimmtudagur, janúar 04, 2007

Myndir

Frá áramótagleðinni eru komnar inn á myndasíðuna.

Áramótaheitið

Ég er ekki mikið fyrir það að strengja áramótaheit. Gleymi því oftast en ef ég gerist svo djörf að finna mér eitthvað flott heit þá er ég oftast búin að gleyma því áður en Janúar er liðinn. Það er því kannski bara best að strengja almenn heit og kannski nokkur þannig að maður gæti mögulega slysast til að uppfylla allavegna einhvern smá part eða hluta þegar árið líður. Mér datt þess vegna í hug að "skjalfesta" nokkur atriði hér þannig að maður gæti, þegar árið er liðið, farið yfir þau og metið hvernig tókst til. Hérna eru drög að mínum 10 heitum sem ég ætla að reyna að vinna í áttina að á þessu ári:

1. Ég ætla að vera duglegri að læra

2. Ég ætla að vera ennþá betri við fólkið mitt

3. Ég ætla að koma lagi á fjármálin

4. Ég ætla að reyna að fara 2x til útlanda

5. Ég ætla að reyna að drekka minna kaffi og fá mér te í staðinn

6. Ég ætla að reyna að drekka minna áfengi

7. Ég ætla að hætta að láta fólk fara í taugarnar á mér

8. Ég ætla að hætta að taka nærri mér þegar fólk kemur illa fram við mig

9. Ég ætla að lesa meira

10. Ég ætla að vera duglegri að hitta vini mína

Það verður svo bara að koma í ljós hvernig það gengur að standa við þetta allt. Þetta eru allavegana fín boðorð til að hafa sem leiðarljós á árinu, svona ásamt því að vinna að því að verða betri manneskja.

þriðjudagur, janúar 02, 2007

Annáll ársins 2006

Í tilefni af því að árið 2006 er á enda og nýtt að byrjað þá ætla ég að nota tækifærið og rita hér einhverskonar annál. Það er óhætt að segja að árið hafi verið viðburðaríkt og það sé af mörgu að taka. Er búin að vera að lesa yfir bloggið hægt og hægt, skoða commentin og endurlifa hverja stund síðustu daga, það virðist eitthvað svo stutt síðan það var janúar og frekar ótrúlegt að það sé komin janúar strax aftur.

Janúar:
Eftir nokkurn undirbúning var 3. Janúar lagt af stað í aftakaveðri suður í Leifsstöð þar sem ferðinni var heitið til London. Þar hittum við Stínu og Sissa og fengum að gista hjá þeim í nokkra daga áður en ferðinni var heitið til Delhi á Indlandi með stuttri viðkomu í Frankfurt. Indland heilsaði okkur heitt og rakt og tókst að koma okkur á óvart nánast hver dag sem við dvöldum þar. Við fórum hringferð og sáum Bleiku borgina, Taj Mahal, Agra og Jaipur að ógleymdri ferðinni okkar um Gömlu Delhi. Frá Delhi flugum við til Bangkok og þurftum að dvelja á flugvellinum þar yfir nótt sem fer seint í sögubækurnar sem besta nótt ferðarinnar. Seint og síðar meir flugum við svo til Beijing þar sem tók á móti okkur ískalt loftið. Dúðuð í öll okkar föt skoðuðum við Kínamúrinn, grafir Ming Keisaranna, Torg hins himneska friðar og Forboðnu borgina. Við fórum í ekta kínverskt tehús og borðuðum Pekingönd sem var alveg yndilega góð. Undir lok mánaðarins vorum við svo komin aftur til Bangkok í hitann, farin að borða yndislega thailenska matinn og hafa það gott. Dekur af bestu gerð og ferð á flottasta spítala í heimi. Undir lok mánaðarins vorum við svo komin til Laos, búin að fara yfir Mekong ána og eyða yndislegum dögum í pínulitla bænum Nong Khai.

Febrúar:
Skoðuðum höfuðborg Laos sem heitir Vientiane í nokkra daga áður en við tókum flugið yfir til Hanoi, Víetnam. Skelltum okkur í bátssiglingu á Halong Bay með fullt af skemmtilegu fólki. Smátt og smátt fikruðum við okkur svo neðar í landið sem er langt og mjótt. Stoppuðum í Hue, Hoi An og létum sauma á okkur heilan helling af fötum, Na Trang þar sem við héltum upp á afmælið hans Indriða og fórum svo þaðan til Saigon eða Ho Chi Minh City. Í þeirri merkilegu borg sáum við karlinn (HoChiMinh) uppstoppaðan í voða fínni grafhvelfingu sem var frekar steikt, hittum fullt af skemmtilegu fólki og skemmtum okkur konunglega. Síðustu dögunum í Víetnam var eytt í siglingu um Mekong Delta svæðið sem er vatnasvæðið í kringum Mekong ánna neðst í Víetnam. Við sigldum yfir til Kambodíu og eyddum nokkrum dögum í Phnom Penh við að skoða stríðsmynjarnar frá tímum Pol Pot. Kynntumst Toni og Janinu sem eru æðislegir finnskir krakkar sem við erum ennþá í sambandi við. Fórum svo með bát til Siem Reap til að skoða Angkor hofin sem voru æðisleg. Indriði fór á spítala og daginn eftir fórum við í verstu rútuferð ferðarinnar (en þær voru mjög margar vondar). Mánuðurinn endaði svo með heitri sturtu og grænu karrýi á Asha Guesthouse í Bangkok í Thailandi.

Mars:
Vorum örfáa daga í Thailandi og fórum svo þaðan til Singapore. Við vorum bæði mjög hrifin af því landi þó Indriða hafi fundist það aðeins of fullkomið til að vera satt. Skoðuðum dýragarð, sjávardýrasafn og fengum okkur Singapore Sling á 70. hæð á e-m skýjakljúfri. Flugum þaðan til Ástralíu, skoðuðum óperuhúsið, klöppuðum koalabjörnum og kengúrum, sáum ólympíuþorpið og höfðum það huggulegt. Frá Ástralíu flugum við aftur í tímann, yfir daglínuna til litlu eyjunnar Rarotonga þar sem við vorum í tvær vikur í sól og blíðu í góðu yfirlæti. Gerðum mest lítið nema spila, liggja í sólbaði og hafa það huggulegt. Frá Raro flugum við til LA með stuttu stoppi á Tahiti. Vorum í uþb viku í LA hjá Al og Nennu sem er frænka Indriða. Skoðuðum ótrúlega margt, fórum í Universal Studios, Six flags, Rodeo Drive, túristaferð til að sjá heimili stjarnanna og margt fleira. Það var æðislegt að vera í LA og ég væri meira en til í að fara þangað aftur.

Apríl:
Vorum viku í Seattle. Skoðuðum allskyns, fórum á íshokkíleik, á fiskmarkaðinn, leigðum okkur bíl og keyrðum um í einn dag, hittum Atla Levy og sáum húsið sem Indriði og family bjuggu í þegar þau voru þarna. Fórum svo þaðan til New York baby sem var æðislegt og ég ætla að fara aftur þangað á næsta ári. Central Park, Times Square, Rockefeller center, Brooklyn bruin, allar fínu búðirnar og bara allt þarna var svo æðislegt eitthvað. Langar að flytja þangað. Flugum til London og stoppuðum þar í nokkra daga og svo stefnan sett heim á leið. Komum heim um miðjan mánuðinn og fljótlega féll allt í ljúfan löð og varð eins og maður hefði aldrei farið neitt.

Maí:
Ég byrjaði að vinna hjá Húsasmiðjunni og tók strætóinn á hverjum morgni. Ekkert allt of skemmtilegt, hvorugt. Mamma varð 50 ára og fór fjölskyldan saman á Lækjarbrekku af því tilefni. Ég kaus og hélt áfram að agnúast út í menn og málefni og hafa skoðun á allt of mörgu.

Júní:
Við seldum íbúðina á Þinghólsbrautinni. Fórum á Reykjavík Tropic sem var alveg frábært og rosalega gaman. Ég fékk Lancerinn lánaðann hjá mömmu og varð sjúklega ástfangin af Jeff Who? Við keyptum okkar íbúðina á Grettisgötunni og byrjuðum strax að huga að endurbótum. Ég og Guðný Ebba eyddum ómældum tíma á kaffihúsum, aðallega Prikinu, í spjall, slúður og kaffiþamb.

Júlí:
Vorum öll kvöld og helgar í íbúðinni á milli þess sem við sinntum dagvinnunum og stöku kvöldvöktum. Mikið rifið út, margar ferðir í Sorpu, mikið ryk, margar ferðir í allskyns skrítnar búðir til að kaupa skrúfur. Maggan og Robbinn komu og hjálpuðu okkur að mála og ma og pa komu og hjálpuðu okkur smá í svona 3 klst annars gerðum við þetta allt sjálf. Finnst við vera ótrúlegar hetjur og hefði aldrei grunað að husbandið væri svona handlagið. Hann er alger snillingur þessi drengur. Ég drakk ennþá meira kaffi með Guðnýju.

Ágúst:
Fyrsta helgin var nýtt í það að flytja. Andrés, Auður og Guðný fengu hetjuverðlaunin fyrir að koma og hjálpa okkur að bera búslóðina hérna upp stigana. Fyrstu dagana var allt í rúst og í raun má segja að það sé ekki ennþá komið í fullkomið lag. Við áttum eins árs brúðkaupsafmæli og héldum upp á það. Flestum okkar stundum var samt sem áður varið í það að koma okkur fyrir í íbúðinni, smíða, laga, breyta og bæta. Rockstar æðið reið yfir og mörg kvöld fóru í það að vaka yfir honum Magna okkar.

September:
Skólinn byrjaði að krafti strax á fyrsta degi. Fögur fyrirheit um hangs á kaffihúsum urðu að engu og blessaðar skólabækurnar hrópuðu á athygli manns af einum of miklum krafti. Stína mín kom í heimsókn, ég kom mér í ritnefnd Stúdentablaðsins, Guðnýjin mín fékk loksins húsnæði og hélt að sjálfsögðu teiti af því tilefni, ég fór í gönguna hans Ómars.

Október:
Ég átti afmæli og að því tilefni héldum við strákurinn afmælis / innflutningsteiti sem var æðislegt. Við skelltum okkur í bústað eina helgi en annars var skólinn gersamlega að drepa mann með óendanlegum fjölda verkefna og prófa. Í raun átti maður sér ekkert líf. Fórum með Chris, Odda, Röggu og Herði að borða á Við tjörnina.

Nóvember:
Skólinn átti hug manns allan. Fórum í afmæli hjá Ístak í nýju Laugardalshöllinni. Ég var samt ótrúlega dugleg að hitta skemmtilegu vinkonur mínar sem eru alltaf í stuði. Á stærstu tónleikahelgi ársins þurfti ég endilega að vera lasin. Var með höfuðverk og nefrennsli á Sykurmolatónleikunum og Sufjan Stevens. Báðir tónleikarnir voru samt æði, maður lætur sig hafa ýmislegt. Þessi flensa var samt upphafið á miklu læknadrama hjá skvísunni, nenni ekki að fara yfir það aftur, mjög leiðinlegt.

Desember:
Prófamánuðurinn rann upp og þá færðist nú aldeilis líf í bloggið. Kaffi, ullarsokkar, ullarpeysa, piparkökur og Bókhlaðan er það sem helst einkenndi þessa prófatörn. Elsku vinkonur mínar þær Katrín og Auður voru duglegar að kippa mér með á Hlöðuna og við að æsa hvora aðra upp í lærdómnum. Svo komu jólin með tilheyrandi ferðum norður í land þar sem við eyddum góðum dögum í faðmi fjölskyldunnar. Núna er komin partý fílingurinn, áramótin að renna upp, steikin komin í ísskápinn og allt að verða ready.


Gæsahúð ársins:
Að sjá Taj Mahal

Skemmtun ársins:
Tropic er ofarlega á listanum en ég held að reisan í heild verði að flokkast sem skemmtun ársins.

Hláturskast ársins:
Vá þau eru sko mörg …uuu ég á svo skemmtilegar vinkonur að flestar stundir með þeim eru eitt stórt hláturskast

Pirringur ársins:
Að vera í leiðinlegri sumarvinnu og að láta leiðinlegt fólk fara í taugarnar á sér.

Par ársins:
Margrét og Róbert

Kona ársins:
Guðný Ebba ...en eiginlega líka allar hinar vinkonur mínar ...þið eruð búnar að standa ykkur á árinu

Maður ársins:
Hann Indriði minn að sjálfsögðu

Vonbrigði ársins:
Að það kom engin að ná í okkur í Leifsstöð þegar við komum til landsins

Happy New Year to ya´ll...

Er búin að vera að vinna í GEÐVEIKUM annáli sem reifar það helsta sem gerðist á því góða ári 2006. Áramótin voru æðisleg, frekar langt síðan maður hefur djammað 3 daga í röð þannig að maður var hálf slappur framan af degi. Stína og Ingi komu í mat til okkar og við elduðum humar og hreindýr. Fórum svo upp á Hallgrímskirkju og horfðum á rakettublisin og á milli þess sem það rigndi yfir okkur rusli. Rötuðum svo næstum því ekki heim í öllum reyknum. Vorum svo með standandi partý til 6 um morguninn, geri aðrir betur. Takk fyrir skemmtunina allir. I had a lot of fun!

Stay tuned fyrir annálinn, hann kemur inn seinna í dag.